Beint í efni

Heita­vatns­laust í hluta Garða­bæjar 28. maí - Ás­garðs­laug lokuð

Tilkynningar
28.05.2026

Vegna bilunar verður heitavatnslaust í hluta Garðabæjar fimmtudaginn 28. maí, frá klukkan 13:00 - 19:00. Loka þarf Ásgarðslaug klukkan 13:00.

Sjá tilkynningu á vef Veitna.

Um bilun í stofnlögn er að ræða. Loka þarf Ásgarðslaug klukkan 13.00 vegna vinnunnar, laugin er lokuð meðan á viðgerð Veitna stendur.

Íbúum er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til að draga úr hættu á slysi eða tjóni þegar vatnið kemst á að nýju. Húseigendum er bent á að huga að innanhússkerfum.

Bilunin getur einnig haft áhrif á vatnsþrýsting annars staðar í bænum. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Heita­vatns­laust í hluta Garða­bæjar 28. maí - Ásgarðslaug lokuð - Garðabær