Beint í efni

Sam­ein­umst und­ir regn­bog­an­um

Fréttir
04.08.2026

Hinsegin dagar standa yfir dagana 4.-9. ágúst í ár og dagarnir eru hátíð menningar, mannréttinda og margbreytileika.

,,Sameinumst undir regnboganum" er yfirskrift Hinsegin daga í ár. Setning hátíðarinnar fer fram í dag 4. ágúst og fjölbreytt dagskrá verður í boði alla vikuna sem nær hápunkti með Gleðigöngunni sem verður gengin laugardaginn 8. ágúst nk. Gangan er í senn kröfuganga hinsegin fólks, sem kallar eftir jafnrétti, vitundarvakningu og útrýmingu mismununar, sem og vettvangur til að fagna því sem hefur unnist í baráttunni.

Hér á vef hinsegin daga má sjá dagskrá vikunnar.

Í tilefni af Hinsegin dögum er flaggað fyrir utan ráðhús Garðabæjar við Garðatorg. Fyrir utan ráðhúsið má sjá regnbogagöngugötu sem vísar leiðina inn á Garðatorg og sumarstarfsmenn Garðabæjar sáu um að hressa upp á litina þegar loks viðraði til málningar í lok júlí.

Garðabær hvetur íbúa til að fagna fjölbreytileikanum í tilefni Hinsegin daga 2026 og sýna þannig mannréttindabaráttu hinsegin samfélagsins mikilvægan stuðning. Gleðilega Hinsegin daga!