Hjólabraut við Sjálandsskóla – Skemmtilegt og lærdómsríkt

Hjólafærnikennsla í Sjálandsskóla hefur vakið mikla lukku meðal nemenda.
Ný og skemmtileg hjólabraut var sett upp við Sjálandsskóla í sumar og hefur verið mikið notuð síðan skólastarfið fór aftur af stað eftir sumarfrí. Á henni fá nemendur tækifæri til að efla markvisst hjólafærni sína
Hugmyndina að hjólabrautinni áttu íþróttakennararnir Guðrún Sigríður Pálsdóttir, Hrafnhildur Sigurðardóttir, Davíð Örvar Ólafsson og Úlfur S. Þórarinsson. Þau standa að baki þróunarverkefninu Hjólað á skólatíma sem snýst um að efla færni nemenda í hjólreiðum og fjölga þeim dögum sem nemendur nota hjól í skólanum. Hjólabrautin er hluti af þeirra vinnu. Hugmynd þeirra að hjólabrautinni kviknaði á námskeiði í Frakklandi þar sem þau kynntust því hvernig frönskum börnum er kennd færni, umferðaröryggi og reglur á hjóli.
Leikjum fléttað inn í kennsluna
Hjólabrautin og æfingarnar eru notaðar í íþróttakennslu í 1.–7. bekk til að kenna nemendum umferðarreglur á hjólreiðastígum og bæta umferðaröryggi þeirra. Á brautinni læra krakkarnir að sýna tillitssemi, virða umferðarreglur, halda sig réttu megin og mæta öðrum vegfarendum án þess að árekstrar verði.

Til að gera kennsluna lifandi og skemmtilega er margs konar leikjum fléttað inn í tímana. Nemendur fá til dæmis að taka að sér hlutverk lögregluþjóna sem fylgjast með brautinni og „sekta“ þá sem hjóla of hratt eða gleyma að gefa merki og virða reglurnar. Með þessum hætti upplifa börnin mismunandi hlutverk í umferðinni og læra hvaða hættur ber að varast.
Hluti af stærra þróunarverkefni
Kennsla þessi er hluti af þróunarverkefninu Hjólað á skólatíma sem unnið var á skólaárunum 2024–2026 með styrk frá Þróunarsjóði grunnskóla Garðabæjar. Markmið verkefnisins er að efla hjólafærni, öryggi og hjólamenningu nemenda.