Hjólreiðastefna Garðabæjar

Hjólreiðastefna Garðabæjar leit dagsins ljós í vor en markmið stefnunnar er að skapa betri aðstæður til hjólreiða og bæta ímynd þeirra þannig að Garðbæingar á öllum aldri velji að fara fleiri ferðir á hjóli.
Hjólreiðar sem ferðamáti hafa aukist til muna á undanförnum árum og um leið hafa kröfur til innviða fyrir hjólreiðar aukist.
Aðdragandi stefnunnar er að bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á fundi sínum þann 5. maí 2022 að skipa stýrihóp til að vinna að hjólreiðaáætlun fyrir Garðabæ. Gott samráð var við ýmsa hagsmunaaðila í upphafi vinnu við mótun stefnunnar, meðal annars íþróttafélög í Garðabæ og Landssamtök hjólreiðamanna.

Í stýrihóp voru þau Hrönn Hafliðadóttir verkefnastjóri skipulagsmála, Kári Jónsson íþrótta-, tómstunda- og forvarnarfulltrúi, Stella Stefánsdóttir formaður umhverfisnefndar og Þorbjörg Þorvaldsdóttir bæjarfulltrúi.
„Hjólreiðar eru vistvænn samgöngumáti sem getur stuðlað að bættri lýðheilsu. Ég fagna því fyrstu hljólreiðastefnu Garðabæjar sem verður höfð að leiðarljósi í skipulagi og framkvæmdum við útivistar- og samgöngunet Garðbæinga þannig að hjólreiðar verði aðgengilegur, eftirsóttur og öruggur grænn valkostur í aðlaðandi umhverfi árið um kring,“ segir Stella Stefánsdóttir.
Þorbjörg tekur undir: „Það er ótrúlega ánægjulegt að Garðabær eigi nú sína fyrstu hjólreiðastefnu. Ég hlakka til að sjá unnið eftir stefnunni á næstu árum, því það er svo sannarlega til mikils að vinna fyrir lýðheilsu Garðbæinga, samgöngur og bæjarbraginn!“
Aðstæður til hjólreiða í Garðabæ eru góðar. Bærinn er staðsettur miðlægt á höfuðborgarsvæðinu þannig að hægt er að komast reiðhjóli um stóran hluta þess á innan við 20 mínútum. Þetta er m.a. eitt af því sem fjallað er um í stefnunni sem gildir til 2030. Í henni er einnig fjallað um núverandi aðstæður, framtíðarmarkmið og fleira sem snertir hjólreiðar sem ferðamáta.
