Beint í efni

Hluta göngu­stígs með­fram Breiðu­mýri lok­að

Fréttir
26.08.2025

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Loka þarf hluta göngustígsins meðfram Breiðumýri vegna vinnu við tengingu dælustöðvar við hreinsistöð og fráveitu.

Vegna framkvæmda við tengingu dælustöðvar við hreinsistöð og fráveitu við Hólmatún á Álftanesi þarf að loka hluta göngustígsins meðfram Breiðumýri.

Vinnusvæði er á og meðfram göngustígnum, við Suðurnesveg· Á meðfylgjandi mynd má sjá hvar vinnusvæðið er.

Hámarkshraði er 30 km/klst. fram hjá vinnusvæði og þrengt er að umferð á meðan á framkvæmd stendur. Áætluð verklok í desember 2025.

Hluta göngustígs meðfram Breiðumýri lokað - Garðabær