Beint í efni

Hluta Vina­stræt­is lok­að vegna fram­kvæmda

Fréttir
15.10.2024

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Loka þarf hluta Vinastrætis í Urriðaholti í dag vegna framkvæmda við þriðja áfanga Urriðaholtsskóla.

Loka þarf hluta Vinastrætis vegna framkvæmda við þriðja áfanga Urriðaholtsskóla. Lokunin er til móts við Vinastræti 14. Sjá mynd af umræddu svæði á meðfylgjandi mynd.

Lokunin er gerð öryggisins vegna til að tryggja betur aðgengi framkvæmdaraðila inn á framkvæmdarsvæðið ásamt því að aðskilja umferð við framkvæmdarsvæðið frá umferð gangandi vegfarenda.

Áætlað er að lokunin standi yfir þar til byggingin verður kláruð vorið 2026. 


Hluta Vinastrætis lokað vegna framkvæmda - Garðabær