HönnunarMars í Garðabæ

HönnunarMars 2026 fer fram 6.-10. maí. HönnunarMars er lifandi vettvangur hugmynda, ólíkra sjónarhorna og þekkingar, þar sem íslensk og alþjóðleg hönnun mætast. Það verður ýmislegt í boði í Garðabæ í tengslum við HönnunarMars.
Í Hönnunarsafni Íslands
Þriðjudaginn 5. maí kl. 17 opna fjórar sýningar vegna HönnunarMars 2026. Á sýningunni Lauf / hjólaferð er ferðalag Lauf Cycles rakið frá fyrstu hugmyndum til alþjóðlegs hjólaframleiðanda. Stúdío Flétta kynna afrakstur dvalar sinnar í vinnustofu safnsins. Hönnuðurinn Anna Gulla sýnir óróa eftir sig úr heimaræktuðu rúghálmi og vír á Pallinum. Inni í Smiðjunni verður sýningin !hannannah! þar sem fræðslustarf Hönnunarsafnsins verður kynnt.
Lauf / Hjólaferð
Lauf Cycles var stofnað árið 2011 af strákum sem finnst skemmtilegast af öllu að hjóla. Þetta voru þeir Benedikt Skúlason verkfræðingur og Guðberg Björnsson vöruhönnuður.
Á sýningunni verður farið í gegnum 15 ára ferðalag sem hófst í bílskúr í Grafarvogi og hefur verið allt í senn torfarið, fallegt og skemmtilegt. Hér verður ekki aðeins litið til baka heldur einnig fram á veginn.

Viðburður á Facebook: Lauf / hjólaferð
Órói
Óróarnir eftir Önnu Gullu eru gerðir úr heimaræktuðu rúghálmi og vír. Hún leyfir innsæinu ráða för og beitir bæði hefðbundnum og óhefðbundnum aðferðum við samsetningu verkanna. Þau taka á sig sjálfsprottið form sem leikur sér með ljós, jafnvægi og spennu.
Sýningin er á Pallinum í Hönnunarsafni Íslands og er hluti af HönnunarMars 2026.

Viðburður á Facebook: Órói
!hannannah!
Hvað þýðir eiginlega þetta orð hönnun? Hver hannar og hvað er hannað? Á nýrri sýningu sem opnar á HönnunarMars gefst gestum færi á að skyggnast inn í fræðslustarf á Hönnunarsafni Íslands fyrir skólahópa. Árlega koma um 2.500 nemendur í fjölbreyttar leiðsagnir um sýningarsali og skapandi smiðjur í fræðslurýminu. Hér kynnum við fatahönnun í gegnum dúkkulísur og innanhússarkitektúr fyrir ímyndaða íbúa. Tilraunagleði, sköpunarkraftur og hönnunarhugsun eru okkar leiðarljós. Fræðslustarfið er leitt af Sigríði Sunnu Reynisdóttur í samstarfi við ÞYKJÓ.

Viðburður á Facebook: !hannannah!
Uppskeruhátíð - Stúdíó Flétta
Vöruhönnuðirnir Birta Rós Brynjólfsdóttir og Hrefna Sigurðardóttir stofnendur Fléttu hafa dvalið í Hönnunarsafni Íslands undanfarnar vikur í vinnustofudvöl og munu nú kynna afrakstur dvalarinnar.

Viðburður á Facebook: Uppskeruhátíð Fléttu
Gönguferð um Urriðaholt
Urriðaholt hefur vakið athygli fyrir metnaðarfullt skipulag þar sem lögð er áhersla á tengsl milli byggðar og náttúru, fjölbreytt opin rými og góðar göngu- og hjólatengingar innan hverfisins og við nærliggjandi svæði. Í deiliskipulagi svæðisins er sérstök áhersla lögð á lífið á milli bygginga; samfelld græn svæði, stíga og leikrými sem tengja hverfið við aðliggjandi náttúru og skapa ramma um daglegt mannlíf.

Félag íslenskra landslagsarkitekta (FÍLA) býður til leiðsagnar um Urriðaholt í tengslum við HönnunarMars. Í gönguferðinni verður sjónum beint að því hvernig landslagshönnun, græn svæði og leikrými móta hverfið og daglegt líf íbúa þess.
Gangan hefst við Urriðaholtsskóla þar sem lóðin verður skoðuð. Þaðan verður gengið um hverfið eftir grænum tengingum sem liggja í gegnum byggðina og tengja holtið við Urriðavatn. Á leiðinni verður meðal annars komið við á leikskólalóð Urriðabóls og opin svæði skoðuð þar sem sjá má hvernig rými fyrir leik, útivist og samveru hafa verið mótuð.
Leiðsögning verður í höndum landslagsarkitekta sem segja frá hugmyndum og hönnun á bak við svæðin sem farið verður um og hvernig þau mynda samfellda heild í skipulagi hverfisins. Á leiðinni verður fjallað um hvernig rými milli bygginga – stígar, leiksvæði og gróður - skapa vettvang fyrir daglegt mannlíf í hverfinu. Einnig verður fjallað um umhverfisáherslur í skipulagi hverfisins, þar á meðal blágrænar ofanvatnslausnir, vistvænar samgöngur og umhverfisvottun Urriðaholts sem hefur haft áhrif á mótun byggðar og opinna svæða.
Gestum verður einnig boðið kort af svæðinu með merktum viðkomustöðum og stuttum upplýsingum um það sem er áhugavert að skoða á leiðinni. Þannig geta þátttakendur gengið leiðina á eigin hraða og staldrað við á þeim stöðum sem vekja áhuga þeirra.
Svæðin sem heimsótt verða eru hönnuð af landslagsarkitektastofunum Landslagi, Landformi og Teiknistofu Norðurlands.
Viðburðurinn er opinn fólki á öllum aldri og eru barnafjölskyldur sérstaklega velkomnar. Gangan tekur um tvær klukkustundir.
- Hvar: Mæting við bílastæði Urriðaholtsskóla. Gönguferð um Urriðaholt.
- Hvenær: Laugardaginn 9. maí 2026 kl. 14-16.
- Leiðsögn: Landslagsarkitektar frá Landslagi, Landformi og Teiknistofu Norðurlands
- Hvað: FÍLA býður til gönguferðar um grænar tengingar og leiksvæði í Urriðaholti og munu landslagsarkitektar segja frá hönnun svæðanna. Gestir frá einnig kort af leiðinni sem hægt er að nýta í frjálsan ratleik um svæðið. Leiðsögnin tekur um tvær klukkustundir og er opin öllum.
- Viðburðurinn á Facebook: Þar sem hverfið lifnar við
Vörðugata - Verk í vinnslu
Vörðugata hlaut fyrstu verðlaun í hönnunarsamkeppni um kennileitishús í Urriðaholti árið 2021.
Hönnuðir hússins eru TRÍPÓLÍ + KRADS. Myndlistarmaðurinn Egill Sæbjörnsson gerði lágmyndir á útveggjum þess og Landslag sér um lóðarhönnun. Í tilefni þess að uppsteypu hússins er að ljúka er gestum HönnunarMars boðið í leiðsögn um bygginguna laugardaginn 9. maí kl. 12:00.

Skráning er nauðsynleg þar sem takmarkaður fjöldi getur sótt leiðsögnina.