Hreinsunarátaki Garðabæjar hrundið af stað
Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Hreinsunarátak Garðabæjar er hafið og stendur yfir til 12. maí. Bæjarfulltrúar láta sitt ekki eftir liggja.
Bæjarfulltrúar brettu upp ermar og hreinsuðu svæðið umhverfis Ásgarð í upphafi hreinsunarátaks Garðabæjar sem er nú hafið og stendur yfir til 12. maí.
Vorhreinsun lóða fer svo fram 9-22. maí. Þá verður 33 gámum komið fyrir í bænum sem taka á móti garðaúrgangi sem íbúar koma sjálfir í gámana. Gámarnir fara niður 9. maí og verða tæmdir reglulega á meðan á vorhreinsuninni stendur. Hérna má nálgast kort sem sýnir staðsetningu gámanna.
Í hreinsunarátakinu eru bæjarbúar hvattir til að sýna gott fordæmi með því að taka nærumhverfi í fóstur og hlúa að því. Hópar geta sótt um að fá úthlutuð svæði til að hreinsa í sínu nærumhverfi og geta fengið styrk í fjáröflunarskyni eða til að halda grillveislu í lok góðrar tiltektar. Áhugasamir hópar geta haft samband við verkefnastjóra garðyrkjudeildar, s. 820 8574, lindajo@gardabaer.is.

Margrét Björnsdóttir, Bjarni, Almar Guðmundsson og Björg Fenger.

Hrannar Bragi.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir.

Almar var vandvirkur með plokkstöngina.

Stella Stefánsdóttir.

Bæjarstjórinn á spjalli við unga Garðbæinga.

Björg Fenger, Siríður Hulda og Sóldís voru hressar.

Ingvar Arnarson stóð sig vel.