Beint í efni

Hreins­un­ar­átaki Garða­bæj­ar ýtt úr vör

Fréttir
21.04.2026

Hreinsunarátak Garðabæjar er hafið og stendur yfir til 4. maí. Bæjarfulltrúar voru heppnir með veður þegar þeir ýttu átakinu úr vör því sólin lét sjá sig.

Bæjarfulltrúar tóku til hendinni og hreinsuðu svæðið umhverfis Arnarneslækinn og hrundu þar með hreinsunarátaki Garðabæjar af stað.

Í þessu árlega átaki eru nágrannar, íbúasamtök, félagasamtök, íþróttafélög og skólar hvattir til að taka þátt. Hópar geta sótt um að fá úthlutuð svæði til að hreinsa í sínu nærumhverfi og geta fengið styrk í fjáröflunarskyni eða til að halda grillveislu í lok góðrar tiltektar.

Bæjarfulltrúar nutu liðsinnis Ásu Bjarkar Sigurðardóttur, forsprakka samtakanna Hreint Íslands, auk fleiri öflugra aðila frá samtökunum. Þau hafa hvatt bæjarbúa til að taka höndum saman í baráttunni gegn rusli í umhverfinu.

Áhugasamir hópar sem vilja taka þátt í hreinsunarátaki Garðabæjar geta haft samband við verkefnastjóra umhverfismála Garðabæjar sem úthlutar svæðum til að hreinsa og veitir frekari upplýsingar: lindajo@gardabaer.is.

Praktísk atriði:

· Þátttakendur eru beðnir um að tína rusl á úthlutuðu svæði

· Hægt er að sækja ruslapoka í Þjónustumiðstöð Garðabæjar, Lyngási 18.

· Þjónustumiðstöðin lánar einnig ruslatínur fyrir þau sem þurfa, eins og unnt er.

· Þátttakendur eru hvattir til að flokka plast sérstaklega í sér poka.

· Pokum skal svo komið þannig fyrir að þeir fjúki ekki og séu á sýnilegum stað til að auðvelda móttöku.

· Að lokinni hreinsun skal senda staðfestingu og staðsetningu poka á lindajo@gardabaer.is, starfsmenn bæjarins munu sækja pokana.