Beint í efni

Hreyf­um okk­ur! – Íþrótta­vika í Garða­bæ 23.–30. sept­em­ber

Fréttir
21.09.2026

Íþróttavika í Garðabæ fer fram 23.–30. september í tilefni af Íþróttaviku Evrópu. #beactive. Við hvetjum þig til að taka þátt.

Fimmtudaginn 24. september Skokkhópur Stjörnunnar býður upp á opna æfingu í Miðgarði kl 17:30, öll velkomin

Föstudaginn 25. september Opinn zumba-tími í Álftaneslaug klukkan 17:00

Laugardaginn 26. september Opinn zumba-tími í Urriðaholtslaug klukkan 14:00

Mánudagur 28. september Skokkhópur Álftaness heldur opna æfingu fyrir byrjendur sem og vana klukkan 17:30, öll velkomin

Þriðjudaginn 29. september Virkniþing eldra fólks er haldið í Miðgarði 29. september. Boðið upp á fjölbreyttar hreyfistöðvar klukkan 10:30. Súpa í boði klukkan 12:00 og fyrirlestrar klukkan 13:00.

Þriðjudaginn 29. september Lyftingadeild Stjörnunnar heldur opna æfingu í Miðgarði klukkan 17:00, öll velkomin.

Markmiðið að kynna íþróttir og hreyfingu

Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin ár hvert dagana 23.–30. september í yfir 40 Evrópulöndum. Markmið verkefnisins er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna gegn auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Lögð er sérstök áhersla á að virkja grasrótina og hvetja fólk til að hreyfa sig meira í daglegu lífi. Evrópubúar sameinast undir slagorðinu #BeActive.

Íþróttavika í Garðabæ - viðburður á Facebook.