Beint í efni

Hreysti­vell­ir á fimm stöð­um í Garða­bæ

Fréttir
21.05.2025

Hreystivellina er tilvalið að nýta á blíðviðrisdögum og æfa undir berum himni.

Opnir hreystivellir eru á fimm stöðum í Garðabæ; við Arnarneslækinn, Sunnuflöt, í Bæjargarðinum, í Vinagarði í Urriðaholti og á Álftanesi við sundlaugina. Þá er tilvalið að nýta til líkamsræktar í veðurblíðu líkt og þessari sem hefur leikið við okkur undanfarið.

Tækin henta öllum 13 ára og eldri og eru þau einföld í notkun. Hvert tæki er merkt lit sem gefur til kynna hvaða þætti tækin þjálfa

Grænt - þol: til að byggja upp hreysti og þol

Rautt - jafnvægi: til að auka jafnvægi og samhæfingu

Svart - liðleiki: til að teygja á vöðvum líkamans og auka liðleika

Gult- styrkur: til að þjálfa einstaka vöðvahópa

Sérstaklega er gætt að aðgengi fyrir hjólastóla á þessum hreystivöllum.

Frábært útsýni við Arnarneslækinn.