Beint í efni

Íbúa­fund­ur um þrótta- og úti­vist­ar­svæði í Smala­holti og Vetr­ar­mýri

Fréttir
16.01.2025

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Opinn íbúafundur vegna forkynningar á deiliskipulagi íþrótta- og útivistarsvæðis í Smalaholti og Vetrarmýri verður haldinn 22. janúar.

Íbúafundur vegna forkynningar á deiliskipulagi íþrótta- og útivistarsvæðis í Smalaholti og Vetrarmýri verður haldinn í Sveinatungu á Garðatorgi, miðvikudaginn 22. janúar 2025 klukkan 17:00.

Forkynningin nær yfir golfvöll í Vetrarmýri, skógrækt í Smalaholti og æfingavelli við Miðgarð.

Deiliskipulagið tekur til breyttrar og framlengdrar legu Vífilsstaða- og Elliðavatnsvegar að Kjóavöllum ásamt því að fjalla um legu Vorbrautar við Þorrasali norðan við golfvöllinn.

Í tillögunni er jafnframt sýnd lega stíga og stofnstíga ásamt staðsetningu áningarstaða og undirganga við Elliðavatnsveg.

Íbúafundur um þrótta- og útivistarsvæði í Smalaholti og Vetrarmýri - Garðabær