Beint í efni
IS

Íþrótta­kenn­arar í Sjá­lands­skóla hlutu við­ur­kenn­ingu

Fréttir
08.06.2026

Íþróttakennarar í Sjálandsskóla hlutu viðurkenningu frá Háskólanum í Reykjavík fyrir framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum. Horft var til þróunarverkefnisins Hjólað á skólatíma en það verkefni hlaut styrk úr Þróunarsjóði Garðabæjar. Verkefnið snýr m.a. að því að efla markvisst hjólafærni nemenda.

Íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík bauð íþróttakennurum í grunnskólum til þátttöku í framtaki sem miðar að því að varpa ljósi á áhrifaríkar og hvetjandi aðferðir við kennslu í skólaíþróttum og sundi. Þá var einnig markmiðið að draga fram góða og vandaða starfshætti í faginu og miðla þeim áfram innan stéttarinnar.

Þau Guðrún Sigríður Pálsdóttir, Hrafnhildur Sigurðardóttir, Davíð Örvar Ólafsson og Úlfur S. Þórarinsson standa að baki verkefnisins Hjólað á skólatíma og hlutu íþróttaviðurkenningu HR. Hjólað á skólatíma snýst um að efla færni nemenda í hjólreiðum og fjölga þeim dögum sem nemendur nota hjól í skólanum.

Sérstök matsnefnd var sett saman til að fara yfir þær umsóknir sem bárust og veita umsögn og viðurkenningu. Í umsögn dómnefndar um verkefni Sjálandsskóla segir:

„Í Sjálandsskóla er vel ígrundað og vel skipulagt verkefni sem búið er að þróa með getu og hag nemenda fyrir brjósti. Í þessu verkefni sést skýrt hvernig búið er að taka nýju viðmiðin í námskránni um útivist og sníða þau að skólastarfinu. Þar var um frábæra útikennslu að ræða sem er til eftirbreytni. Íþróttakennararnir sem fá viðurkenningu eru þau Guðrún Sigríður Pálsdóttir, Hrafnhildur Sigurðardóttir, Davíð Örvar Ólafsson og Úlfur S. Þórarinsson. Þau hafa sett fram mjög skýrt og lýsandi námsmat sem auðvelt er fyrir nemendur að staðsetja sig á.“

Íþróttakennarar úr Engjaskóla og Rimaskóla hlutu einnig viðurkenningu íþróttafræðideildar HR. Sjá nánar á vef HR.

Mynd/ HR

Íþróttakennarar í Sjálandsskóla hlutu viðurkenningu - Garðabær