Íþróttamiðstöð Urriðaholts tekin formlega í notkun

Gleðin var við völd þegar íþróttamiðstöð Urriðaholts var opnuð með formlegum hætti. Blásið var til sundlaugapartís í nýjustu laug Garðabæjar.
Íþróttamiðstöðin í Urriðaholti var opnuð almenningi formlega í gær, 10. september. Af því tilefni var blásið til skemmtilegs sundlaugapartís í laug íþróttamiðstöðvarinnar. Almar Guðmundsson sagði nokkur vel valin orð áður en hann naut góðrar aðstoðar viðstaddra við að taka laugina formlega í notkun.
„Íbúar Urriðaholts og fleiri hafa beðið með eftirvæntingu eftir að þessi nýja og glæsilega íþróttamiðstöð og sundlaug sé tekin í notkun. Þetta var afar ánægjuleg stund sem við áttum saman í lauginni í gær. Til að fagna þessum tímamótum verður frítt í laugina yfir helgina og alla í næstu viku, þannig að nú hvet ég ykkur bara til að prófa nýjustu laug Garðabæjar,“ segir Almar.



Íþróttamiðstöð Urriðaholts
Innan íþróttamiðstöðvarinnar eru íþróttasalur og innisundlaug ásamt tilheyrandi rýmum, svo sem innrauðri saunu og útisvæði með vaðlaug og heitum potti. Urriðaholtsskóli nýtir sundlaugina í sundkennslu á skólatíma.

Opnunartími Urriðaholtslaugar fyrir almenning er sem hér segir:
Virka daga: 06:30 til 8:00 og 18:00 til 22:00
Laugardaga og sunnudaga: 9:00 til 18:00