Jónmundur Grétarsson leikari er bæjarlistamaður Garðabæjar 2026

Bæjarlistamaður Garðabæjar 2026 var útnefndur við hátíðlega athöfn í Sveinatungu á Garðatorgi þann 28. maí. Bæjarlistamaðurinn er leikarinn Jónmundur Grétarsson. Við sama tilefni var arkitektinn Sigurður Hallgrímsson heiðraður fyrir ómetanlegt framlag til byggingarlistar.
Þá var ungmennum veittur styrkur úr Hvatningarsjóði fyrir unga hönnuði og listamenn.
Bæjarlistamaðurinn Jónmundur hefur leikið frá því hann var ungur að árum en hann hefur komið fram í fjölmörgum leikritum, sjónvarpsþáttum og kvikmyndum, bæði hérlendis og erlendis. Að undanförnu hefur hann leikið í Bústaðnum í Tjarnarbíói og í Gæðablóði í Þjóðleikhúsinu en hann er einn höfunda Gæðablóðs. Í verkinu deila þrír litaðir Íslendingar reynslu sinni af því að alast upp á Íslandi.
Jónmundur hefur verið mikil fyrirmynd í því að tala um fordóma og nýtt leiklistina til að vekja fólk til umhugsunar um hinar ýmsu birtingamyndir þeirra. Hann er einn af stofnendum Elefant leikhópsins en hópurinn samanstendur af ungum íslenskum leikurum af blönduðum uppruna. Meðal verka sem hópurinn hefur tekið þátt í að setja á laggirnar er Smán og Íslandsklukkan. Síðarnefnda sýningin hlaut fjölda tilnefninga til Grímunnar.
Við óskum Jónmundi til hamingju og Garðbæingum sömuleiðis með nýjan bæjarlistamann.

Sigurður sett mark sitt á bæinn
Sigurður Hallgrímsson arkitekt hefur teiknað um 150 einbýlishús í Garðabæ og setur þannig mark sitt á bæinn með glæsilegum og stílhreinum arkitektúr. Sigurður teiknaði einnig Hof á Akureyri í félagi við son sinn, Hallgrím Sigurðsson. Þá eru Mjólkursamsalan og höfuðstöðvar Icelandair meðal verka Sigurðar. Sigurður hefur átt farsælt samstarf við eiginkonu sína, Guðbjörgu Magnúsdóttur innanhússarkitekt. Garðabær þakkar Sigurði fyrir ómetanlegt starf.

Ungmennin sem hlutu styrk voru C-sveit Blásarasveitar Tónlistarskóla Garðabæjar, hornleikarinn Daníel Kári Jónsson, Leikfélagið Fuglabjarg og Hanna Álfheiður Gunnarsdóttir leikkona. Fyrir athöfnina lék Blásarasveitin fyrir gesti og Leikfélagið Fuglabjarg flutti atriði úr Litlu hryllingsbúðinni.