Kaldavatnslaust í Urriðaholtsstræti 9-15, 20. maí
Tilkynningar
20.05.2026

Loka þarf fyrir kalt í Urriðaholtsstræti 9-15, miðvikudaginn 20. maí, frá kl:13:00 til 15:00.
Vegna vinnu vatnsveitu við stofnæð í Urriðaholtsstræti 9-15 verður lokað fyrir kalt vatn miðvikudaginn 20. maí, áætlað að lokun vari frá kl:13:00 til 15:00.
Sjá má á meðfylgjandi mynd svæðið sem um ræðir.
Íbúar eru beðnir um að gæta þess að það sé lokað fyrir kaldavatnskrana þegar farið er að heiman. Einnig að hafa í huga að opna varlega fyrir vatnið aftur, fyrst sem næst kaldavatnsinntakinu til að ná lofti úr lögninni sem getur myndast við lokun sem þessa.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.