Beint í efni

Kalda­vatns­lok­un í Skóg­ar­lundi og Asp­ar­lundi á fimmtu­dag

Fréttir
19.02.2025

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Lokað verður fyrir kalda vatnið á milli klukkan 10:00 og 12:00, 20. febrúar.

Vegna viðgerðarvinnu Vatnsveitu Garðabæjar verður lokað fyrir kalda vatnið í Skógarlundi og hluta af Asparlundi á milli klukkan 10:00 og 12:00 á morgun, fimmtudaginn 20. febrúar.

Íbúar eru beðnir um að gæta þess að það sé lokað fyrir kaldavatnskrana þegar farið er að heiman.

Á meðfylgjandi mynd má sjá græna línuteikningu utan um svæðið sem kaldavatnslokunin nær yfir.