Kjörfundur í Garðabæ

Kjörfundur vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB, er fram á að fara laugardaginn 29. ágúst 2026, verður í íþróttamiðstöðinni Mýrinni og Álftanesskóla.
Í íþróttamiðstöðinni Mýrinni verður kosið í eftirfarandi kjördeildum.
I. Kjördeild Aftanhæð – Birkiás, Íslendingar búsettir erlendis
II. Kjördeild Birkihæð - Efstilundur
III. Kjördeild Eikarás - Grímsgata
IV. Kjördeild Grjótás – Holtsvegur 2-39
V. Kjördeild Holtsvegur 41-47 – Kinnargata 1-43
VI. Kjördeild Kinnargata 44-92 - Langamýri
VII. Kjördeild Laufás – Maríugata 1-11
VIII . Kjördeild Maríugata 12-40 - Sigurhæð
IX. Kjördeild Sjávargrund - Sunnuflöt
X. Kjördeild Súlunes - Ögurás
Í Álftanesskóla verður kosið í eftirfarandi kjördeildum.
I. Kjördeild Asparholt – Lambhagi
II. Kjördeild Litlabæjarvör – Þóroddarkot, (Húsanöfn)
Kjósendur sem búsettir eru á Álftanesi, Garðahverfi, Hleinum og í Prýðahverfi kjósa í Álftanesskóla. Kjósendur búsettir á öðrum svæðum í bæjarfélaginu kjósa í Mýrinni.
Sjá nánari upplýsingar um einstaka götur á hér á vef Garðabæjar gardabaer.is.
Íslenskir ríkisborgarar sem búsettir eru erlendis og áttu síðast lögheimili hér á landi í Sveitarfélaginu Álftanesi eða Garðabæ og eiga hér kosningarétt eru allir á kjörskrá í I. kjördeild í íþróttamiðstöðinni Mýrinni.
Á vefsíðu Þjóðskrár Íslands, skra.is, er hægt að nálgast nánari upplýsingar um hvort einstaklingar eru á kjörskrá eða ekki. Leiðbeiningar og upplýsingar um kosningarnar er einnig að finna á vefsíðunni kosning.is.
Kjörfundur mun hefjast kl. 09:00 og standa til kl. 22:00.
Til að geta kosið þarf kjósandi að sýna fram á að hann sé sá sem hann segist vera svo sem með því að framvísa skilríki með nafni, kennitölu og mynd, t.d. ökuskírteini, vegabréfi eða nafnskírteini.
Stafræn ökuskírteini eru gild skilríki við kosningar. Kjósendur þurfa að nálgast þau í Ísland.is appinu þar sem þau eru núna aðgengileg.
Yfirkjörstjórn Garðabæjar hefur aðsetur í íþróttamiðstöðinni Mýrinni á meðan á kjörfundi stendur og hverfiskjörstjórn Álftaness verður með aðsetur í húsnæði Álftanesskóla.
Talning atkvæða fer fram hjá yfirkjörstjórn Suðvesturkjördæmis sem er með aðsetur í Kaplakrika.
Yfirkjörstjórn Garðabæjar
Jóhann Steinar Ingimundarson
Kristín Einarsdóttir
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson