Beint í efni

Kjör­skrá Garða­bæj­ar vegna þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu 29. ág­úst

Auglýsingar
30.07.2026
Ráðhús Garðabæjar

Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu er fram á að fara laugardaginn 29. ágúst 2026 mun liggja frammi almenningi til sýnis í þjónustuveri Garðabæjar í Ráðhúsinu við Garðatorg, frá og með fimmtudeginum 6. ágúst 2026 til kjördags.

Á kjörskrá Garðabæjar samkvæmt 3. gr. kosningalaga nr. 112/2021 eru allir íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri þegar kosning fer fram og voru með lögheimili hér á landi 22. júlí 2026.

Íslenskir ríkisborgarar búsettir erlendis, sem náð hafa 18 ára aldri og hafa átt lögheimili hér á landi, eiga kosningarrétt í sextán ár í því sveitarfélagi sem þeir fluttu lögheimili frá.

Íslenskir ríkisborgarar búsettir erlendis sem náð hafa 18 ára aldri en fluttu lögheimili sitt fyrir meira en 16 árum geta átt kosningarrétt hafi þeir sótt um það til Þjóðskrár Íslands fyrir 1. desember 2025. Hafi ekki verið sótt um fyrir 1. desember 2025 geta þeir sem hafa haft lögheimili erlendis, lengur en 16 ár, ekki kosið við þjóðaratkvæðagreiðslu.

Erlendir ríkisborgarar eiga ekki kosningarrétt og eru því ekki á kjörskrá.

Á vefsíðu Þjóðskrár Íslands, skra.is, er hægt að nálgast nánari upplýsingar um hvort aðilar eru á kjörskrá eða ekki. Leiðbeiningar og upplýsingar um kosningarnar er einnig að finna á vefsíðunni kosning.is.

Athugasemdum við kjörskrá skal samkvæmt 32. gr. kosningalaga nr. 112/2021 beint til Þjóðskrár Íslands sem tekur þær þegar til meðferðar og gerir viðeigandi leiðréttingar. Slíkar leiðréttingar má gera fram á kjördag.

Bæjarritari

Sjá nánari upplýsingar hér á undirsíðu á vef Garðabæjar um þjóðaratkvæðagreiðsluna.