Beint í efni

Kven­fé­lag Álfta­ness fagnar ald­ar­af­mæli

Fréttir
29.04.2026

Í tilefni 100 ára afmælisins mun Kvenfélag Álftaness bjóða upp á afmælistertu í félagsaðstöðunni við Lambamýri 1 á Álftanesi þann 16. maí.

Kvenfélag Álftaness fagnaði 100 ára afmæli þann 25. apríl 2026. Félagið var formlega stofnað á Bessastöðum þann dag árið 1926 og hét þá Kvenfélag Bessastaðahrepps. Nafni kvenfélagsins var breytt árið 2004 þegar Bessastaðahreppur varð Sveitarfélagið Álftanes og hefur félagið verið kennt við Álftanes síðan þá.

Í tilefni tímamótanna mun Kvenfélag Álftaness bjóða upp á afmælistertu í félagsaðstöðunni við Lambamýri 1 á Álftanesi þann 16. maí frá klukkan 14:00 til 16:00.

Heimsókn á Bessastaði

Halla Tómasdóttir forseti Íslands tók á móti Kvenfélagi Álftaness á sjálfan afmælisdaginn og birti kveðju á Facebook-síðu sinni.

„Í gær kom Kvenfélag Álftaness í heimsókn en félagið var stofnað á Bessastöðum þann 25. apríl 1926, fyrir heilum hundrað árum! Þetta var hátíðleg stund enda ekki á hverjum degi sem við fögnum 100 ára afmæli félags sem hélt sína félagsfundi fyrstu árin hér á heimili formannsins, Elínar Vigfúsdóttur. Þær hafa allar götur síðan látið til sín taka í þjónustu við samfélagið, eins og kvenfélög um allt land gera, og fyrir það ber að þakka,“ skrifaði Halla.

Núverandi og fyrrverandi formenn kvenfélagsins. Kristín Möggudóttir, Svanhvít Jónsdóttir, Sigríður Rósa Magnúsdóttir, Ólöf M. Sigurjónsdóttir, Guðrún Brynjólfsdóttir núverandi formaður, Halla Tómasdóttir, Margrét Lilja Magnúsdóttir, Hjördís Árnadóttir og Anney Bæringsdóttir.
Stjórn Kvenfélags Álftaness ásamt Höllu. Guðrún Brynjólfsdóttir formaður, Sigrún Björg Elíasdóttir, Þorgerður Kristinsdóttir, Steinunn Gunnarsdóttir og Hjördís Árnadóttir.
Halla tekur á móti Elínu Jóhannsdóttur, heiðursfélaga Kvenfélags Álftaness.
Svanhvít Jónsdóttir, heiðursfélagi Kvenfélags Álftaness, og Halla Tómasdóttir.