Kynning frá íbúafundi um framtíð Vífilsstaða
Fréttir
03.09.2026

Opinn íbúafundur vegna forkynningar á tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaða, 1. áfanga, var haldinn í Sveinatungu 2. september.
Á fundinum var vinnslutillaga að deiliskipulagi Vífilsstaða, 1. áfanga, kynnt og farið var yfir helstu markmið og forsendur skipulagsins.
Meðfylgjandi er kynningin sem farið var yfir á fundinum.
Hægt að senda inn ábendingu til 17. september
Í samræmi við 4. mgr. 40. greinar skipulagslaga nr. 123/2010 stendur nú yfir forkynning á tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaða. Tillagan er aðgengileg á vef Skipulagsgáttar, mál nr. 925/2026. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn rafrænar ábendingar til og með 17. september 2026 í gegnum vef Skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is.