Beint í efni

Íbúa­fund­ur um fram­tíð Víf­ils­staða

Fréttir
27.08.2026

Garðabær býður á íbúafund um framtíð Vífilsstaða. Á fundinum verður tillaga að deiliskipulagi Vífilsstaða kynnt, farið yfir helstu markmið og forsendur skipulagsins og fyrirspurnum svarað.

Í samræmi við 4. mgr. 40. greinar skipulagslaga nr. 123/2010 stendur nú yfir forkynning á tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaða.

Skipulagsnefnd Garðabæjar stendur fyrir kynningarfundi sem haldinn verður í Sveinatungu, Garðatorgi 7, miðvikudaginn 2. september klukkan 17:00-19:00.

Tillagan er aðgengileg hér á vef Garðabæjar og á vef Skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is, mál nr. 925/2026. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn rafrænar ábendingar til og með 17. september 2026 í gegnum vef Skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is.

Fundurinn á Facebook