Lágur þrýstingur á kalda vatninu í Hnoðraholti
Tilkynningar
20.05.2026

Vegna bilunar í búnaði er lágur þrýstingur á kalda vatninu í Hnoðraholti og Þorraholti. Óvíst hversu lengi en viðgerð stendur yfir.
Í Hnoðraholti og Þorraholti er sem stendur lágur þrýstingur á kalda vatninu en ekki vatnslaust. Þrýstingsleysið í Hnoðraholti og Þorraholti í Garðabæ er vegna bilunar á búnaði sem varð eftir lokun á köldu vatni í Kópavogi sem stóð yfir í gær 19. maí vegna tengingar á nýjum vatnstanki við veitukerfi.
Unnið er að viðgerð en á þessari stundu er ekki ljóst hversu langan tíma tekur að gera við en reikna má með að þetta vari í einhvern tíma fram eftir degi eða lengur. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.