Langar þig að halda götugrill?

Í tilefni þess að Garðabær fagnar 50 ára afmæli á árinu er bæjarbúum boðið að sækja um úthlutun úr sérstökum hverfa- og götupotti til að halda götupartí í sumar með sínum nágrönnum.
Hugmyndin með verkefninu er að hópar úr ákveðnum hverfum eða götum taki sig saman og haldi götugrill í sumar. Markmið verkefnisins er að skapa fleiri tilefni fyrir samverustundir bæjarbúa í þeirra nærumhverfi.
Með umsókn úr hverfa- og götupotti er hægt að sækja um styrk til að kaupa veitingar og annað sem nýtist í að halda skemmtilega og fjölskylduvæna viðburði.
Við hvetjum bæjarbúa til að taka höndum saman með sínum nágrönnum og skipuleggja götupartí í sumar.
Frestur til að sækja um styrk úr hverfa- og götupottinum er til 18. júní. Farið verður yfir allar umsóknir og þeim svarað fyrir 25. júní.