Beint í efni

Leit­in að snyrti­leg­ustu lóð­inni

Fréttir
17.06.2026

Árlega veitir umhverfisnefnd Garðabæjar viðurkenningar fyrir snyrtilegar lóðir og götur, skemmtileg opin svæði og framlag til umhverfismála.

Umhverfisnefnd Garðabæjar óskar eftir ábendingum frá bæjarbúum um snyrtilegar lóðir íbúðarhúsnæðis og fyrirtækis 2026. Einnig er leitað ábendinga um skemmtileg opin svæði, snyrtilega götu og framlag til umhverfismála.

Lumar þú á ábendingu um:

  • Snyrtilegar lóðir íbúðarhúsnæðis?
  • Snyrtilegar lóðir fyrirtækis?
  • Skemmtileg opin svæði?
  • Snyrtilega götu?
  • Framlag til umhverfismála?

Við viljum heyra frá þér!

Hægt er að skila inn ábendingum í þjónustuver Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða með því að senda tölvupóst á netfangið: gardabaer@gardabaer.is fyrir 13. júlí.

Einnig er hægt að senda inn ábendingu hér, í gegnum Forms-eyðublað.

Hérna má lesa um umhverfisviðurkenningar undanfarinna ára.