Beint í efni

Loka­há­tíð Skap­andi sum­ar­starfa

Fréttir
20.07.2026
Lokahátíð Skapandi sumarstarfa 2026

Lokahátíð Skapandi sumarstarfa fer fram í dag mánudaginn 20. júlí frá kl. 17 til 19 í Gróskusalnum og Ungmennahúsinu á Garðatorgi.

Skapandi sumarstörf í Garðabæ eru starfrækt yfir sumartímann í júní og júlí þar sem ungu fólki í Garðabæ gefst kostur á að vinna að listum og fjölbreyttum skapandi verkefnum. Í júlí er ávallt haldin lokasýning þar sem ungmennin sýna afrakstur sumarsins sem þau hafa ýmist unnið að ein eða í minni hópum.

Lokahátíðin í ár verður haldin mánudaginn 20. júlí frá kl. 17:00-19:00 og fer að þessu sinni fram í Gróskusalnum og Ungmennahúsinu á Garðatorgi. (Gengið inn á torgið við hliðina á Bónus, hægra megin við Bastel er gengið upp á 2. hæð).

Öll eru hjartanlega velkomin að koma og fagna uppskeru sumarsins með listafólkinu!

Á facebook síðu Skapandi sumarstarfa er hægt að fylgjast með hópnum og þar má m.a. sjá kynningarmyndbönd þar sem ungmennin segja frá verkefnum sumarsins.

Sjá einnig viðburð á facebook síðu Skapandi sumarstarfa.