Beint í efni

Loka­há­tíð Stóru upp­lestr­ar­keppn­innar í Garða­bæ

Fréttir
05.05.2026

Jökull Orri Aríelsson úr Flataskóla stóð uppi sem sigurvegari Stóru upplestrarkeppninnar í Garðabæ. Íris Rut Magnúsdóttir úr Sjálandsskóla var í öðru sæti og Arnar Dagur Grétarsson úr Urriðaholtsskóla í því þriðja.

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Garðabæ fór fram í Hofstaðaskóla 29. apríl.
Þá lásu nemendur í 7. bekk sem valdir hafa verið úr Álftanesskóla, Flataskóla, Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla og Urriðaholtsskóla brot úr skáldverki og ljóð.

Jökull Orri Aríelsson úr Flataskóla stóð uppi sem sigurvegari keppninnar. Íris Rut Magnúsdóttir úr Sjálandsskóla var í öðru sæti og Arnar Dagur Grétarsson úr Urriðaholtsskóla í því þriðja.

Dómarar keppninnar voru Jóhann Skagfjörð skólastjóri Garðaskóla, Anna María Gunnarsdóttir aðstoðarskólameistari Fjölbrautaskólans í Garðabæ og Margrét Berndsen Sigurgeirsdóttir forstöðumaður bókasafns Garðabæjar.

Nemendur stóðu sig vel og í lokin fengu allir þátttakendur viðurkenningu. Sigríður Hulda Jónasdóttir formaður skólanefndar Garðabæjar flutti ávarp og Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar veitti nemendunum verðlaun.

Þess má geta að Stóra upplestarkeppnin er 30 ára á árinu.Við óskum sigurvegurunum innilega til hamingju og þökkum öllum fyrir skemmtilega og vel heppnaða keppni.