Lokanir vegna framkvæmda mánudaginn 21. september
Tilkynningar
18.09.2026

Á mánudaginn nk. 21. september mun Loftorka vinna á nokkrum stöðum í Garðabæ, ef veður leyfir. Lokanir verða settar upp vegna framkvæmdanna.
Framkvæmdir verða sem hér segir:
- Holtsvegur: Loftorka mun vinna við fræsun á Holtsvegi, milli Lindastrætis og Bæjargötu. Framkvæmdir hefjast um klukkan 9 og munu standa fram eftir degi, eða til um klukkan 15. Á meðan framkvæmdum stendur verður götukaflinn lokaður allri umferð, en hjáleið verður um Bæjargötu/Kinnargötur eins og sýnt er á meðfylgjandi lokunarplani:

- Þar að auki stefnir Loftorka á að malbika þær botnlangagötur sem hafa verið í framkvæmdum í vikunni, en það eru:
- Ásbúð, botnlangi nr. 79-89
- Hörgslundur botnlangi nr. 11-19