Lokanir á Flóttamannavegi vegna malbikunar 17. september
Tilkynningar
16.09.2026

Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir fimmtudaginn 17. september:
- Malbikun á Flóttamannavegi á milli Vífilsstaðavegar og Urriðaholtsvegar (Mynd 1). Framkvæmdirnar munu standa frá 09:00 til 16:00 fimmtudaginn 17. september.
- Lokað verður fyrir umferð á meðan framkvæmdum stendur.

- Malbikun á Flóttamannavegi á milli Kaldárselsvegar og Urriðaholtsvegar (Mynd 2). Framkvæmdirnar munu standa frá 14:00 til 21:00 fimmtudaginn 17. september.
- Lokað verður fyrir umferð á meðan framkvæmdum stendur.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Ábyrgðarmaður veghaldara er Hallvarður 699-6450 og ábyrgðarmaður verktaka er Valdimar 663-0104.