Beint í efni

Lok­un á Flótta­manna­vegi vegna fram­kvæmda

Fréttir
15.04.2026

Loka þarf kafla á Flóttamannavegi frá og með mánudeginum 20. apríl vegna framkvæmda við nýtt hringtorg.

Loka þarf kafla á Flóttamannavegi frá og með mánudeginum 20. apríl til föstudagsins 15. maí vegna framkvæmda við nýtt hringtorg á mótum Flóttamannavegar og Urriðaholtsstrætis. Lokað verður sunnanmegin við Kaldárselsveg við Hafnarfjörð og norðanmegin við afleggjarann að Heiðmörk.

Sjá nánar um lokunina á vef Vegagerðarinnar og meðfylgjandi myndir sem sýna lokun og hjáleiðir.

Loka þarf kafla á Flóttamannavegi vegna framkvæmdanna.
Hringtorg við gatnamót Flóttamannavegar og Urriðaholtsstrætis verður brátt tekið í notkun.

Ekki verður hægt að aka í gegnum svæðið á meðan lokunin stendur yfir sem þýðir að ekki verður unnt að aka þessa leið milli Garðabæjar og Hafnarfjarðar. Hægt verður að aka að golfvellinum í gegnum Holtsveg í Urriðaholti. Einnig verður hægt að aka inn í Heiðmörk. Hjáleiðir verða merktar og upplýsingaskilti sett upp við Kaldárselsveg og Vífilsstaðaveg.

Auk hringtorgsins er unnið að vegtengingum og göngustígum, en framkvæmdir þessar munu bæta umferðaröryggi og ekki síst bæta aðgengi fyrir Urriðaholtið.