Beint í efni

Lok­un á köldu vatni í Þorra­holti, Hnoðra­holti og ná­grenni

Tilkynningar
27.07.2026

Kaldavatnslaust eða minni þrýstingur á kalda vatninu í Þorraholti, Hnoðraholti og nágrenni í dag mánudaginn 27. júlí.

Tilkynning frá Vatnsveitu Garðabæjar:
Vegna óhapps þarf að loka fyrir kalda vatnið í Þorraholti. Það getur því orðið vatnslaust þar sem og vatsnlaust eða minni þrýstingur á kalda vatninu í Hnoðraholti (Eskiholt, Hrísholt og Háholt) og við götur út frá Vorbraut. Viðgerð mun standa yfir fram eftir degi.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.