Malbiksframkvæmdir - lokun á Arnarnesvegi
Tilkynningar
06.08.2026

Föstudaginn 7. ágúst er stefnt á að fræsa hringtorg á Arnarnesvegi við Smárahvammsveg ef veður leyfir. Arnarnesvegur verður lokaður milli Fífuhvammsvegar og Reykjanesbrautar.
Nónhæð og Smárahvammsvegur lokast einnig við Arnarnesveg.
Hjáleiðir verða merktar og vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 09:00 til kl. 14:00 föstudaginn 7. ágúst.