Malbikun á Vífilsstaðavegi
Tilkynningar
19.07.2026

Uppfært: Framkvæmdin frestast vegna veðurs.
Mánudaginn 20. júlí verður unnið að malbikun á Vífilsstaðavegi, milli Hafnarfjarðarvegar og hringtorgs við Unnargrund, ef veður leyfir. Hjáleið verður um Lyngás.
Mánudaginn 20. júlí mun Loftorka vinna að malbikun á Vífilsstaðavegi, milli Hafnarfjarðarvegar og hringtorgs við Unnargrund, ef veður leyfir.
Framkvæmdir hefjast um klukkan 9 og standa fram eftir degi. Á meðan á framkvæmdum stendur verður götukaflinn lokaður fyrir allri umferð.
Hjáleið verður um Hafnarfjarðarveg og Lyngás, eins og sýnt er á meðfylgjandi mynd með frétt.
Opið er fyrir gangandi og hjólandi umferð meðfram lokuninni á Vífilsstaðavegi. Vegfarendur eru beðnir um að fara varlega og fylgja vegamerkingum.