Menning í Garðabæ: Glæný dagskrá fyrir haustið komin út

Nýr bæklingur með menningardagskrá fyrir haustið 2025 er kominn úr prentun og er stútfullur af flottum viðburðum.
Nýjan bækling með menningardagskrá fyrir haustið 2025 má nú nálgast á bókasafni Garðabæjar, á Hönnunarsafni Íslands á Garðatorgi og í þjónustuveri Garðabæjar, Garðatorgi 7. Hann verður svo borinn í hús.
Ólöf Breiðfjörð menningarfulltrúi Garðabæjar segir fjölbreytta og vandaða dagskrá í boði, stútfulla af flottum viðburðum fyrir fólk á öllum aldri.
Tónlistarnæring heldur göngu sinni áfram, einnig verður áfram boðið upp á leiðsagnir, fyrirlestrar og smiðjur á Hönnunarsafni Íslands. Foreldramorgnar og föndurstundir verða á bókasafninu. Þá má nefna bókmenntahátíð, óperudaga, aðventuhátíð og markaði á Garðatorgi. Þetta og miklu meira er fram undan í menningunni í haust.
Nýja bæklinginn er hægt að nálgast á bókasafni Garðabæjar, á Hönnunarsafni Íslands á Garðatorgi og í þjónustuveri Garðabæjar, hann má nálgast hérna í rafrænu formi: Menningardagskrá í Garðabæ - haust 2025