Beint í efni

Mennta­dag­ur Garða­bæj­ar 2026 hald­inn há­tíð­lega

Fréttir
03.11.2026

Menntadagur Garðabæjar 2026 heppnaðist einstaklega vel en þá komu um 550 kennarar og starfsfólk leik- og grunnskóla og frístundaheimila saman á uppskeruhátíð skólastarfsfólks.

Menntadagur Garðabæjar er haldinn hátíðlegur ár hvert og um sannkallaða uppskeruhátíð skólastarfsfólks er að ræða. Dagskráin í ár hófst í Ásgarði þar sem þátttakendur hlýddu á fyrirlestur og skemmtiatriði áður en haldið var í Flataskóla og Garðaskóla þar sem boðið var upp á fjölbreyttar málstofur sem þátttakendur gátu valið á milli.

Við tilefnið veittu leik- og grunnskólanefndir Garðabæjar átta framúrskarandi verkefnum viðurkenningar.

Þeir skólar og verkefni sem hlutu viðurkenningar í ár voru:

  • Íþróttakennsla – Akrar, Fjóla Grétarsdóttir
  • Leiðsögn og málörvun – Urriðaból (báðir starfsstaðir), Ingigerður Gísladóttir og Bylgja Kristín Héðinsdóttir
  • Leggjum við hlustir – börn hafa rödd Hæðarból, Anna Kristborg Svanlaugsdóttir og Bryndís Jónsdóttir
  • Hjólað á skólatíma – Sjálandsskóli, Guðrún Sigríður Pálsdóttir, Davíð Örvar Ólafsson og Hrafnhildur Sigurðardóttir
  • Brúum bilið – samstarf milli leik- og grunnskóla á Álftanesi, Guðfinna Aradóttir
  • Stólaverkefnið – Sjálandsskóli, Rut Ingólfsdóttir Blurton

Ásgerður Arna Sófusdóttir, hjúkrunarfræðingur og teymisstjóri hjá Geðheilsumiðstöð barna, bauð upp á áhugavert erindi undir yfirskriftinni „Ertu að tengja?“ Hvernig tengsl umönnunaraðila styðja við líðan, sjálfsmynd og farsæld barna í skólanum.

Svo var komið að málstofum dagsins þar sem þátttakendur hlýddu á fjölbreytt erindi um verkefni sem hlotið hafa styrki úr þróunarsjóðum leik- og grunnskóla í Garðabæ undanfarin ár. Dagskránni lauk svo í Garðaskóla þar sem öllum þátttakendum gafst tækifæri til að gæða sér á mat og drykk, spjalla og eiga saman góða stund.

Plötusnúðurinn Ragga Holm tók á móti fólki með hressum tónum.
Partýstjórarnir, systurnar Regína og Hildur Magnúsdætur, buðu upp á skemmtilega spurningakeppni og samsöng í upphafi dags.