Beint í efni

Nær­ing­ar­fræð­ing­ar gera út­tekt á skóla­mál­tíð­um og veita fræðslu

Fréttir
27.10.2026

Garðabær hefur gert samning við tvo næringarfræðinga, þær Önnu Lind Traustadóttur og Elísu Viðarsdóttur, um úttekt, fræðslu og ráðgjöf vegna skólamáltíða í leik- og grunnskólum bæjarins.

Markmið samningsins er að tryggja faglega úttekt á matseðlum í leik- og grunnskólum Garðabæjar

Vinna þeirra felst m.a. í skoðun á matseðlum og gerð fræðsluefnis fyrir bæði starfsfólk leik- og grunnskóla og forráðafólk nemenda. Skólastjórar leik- og grunnskóla Garðabæjar fá afrit af skýrslum vegna vinnunnar auk fræðsluefnis um matarræði.

Samningurinn gildir frá hausti 2026 til vors 2028.

Á mynd eru Hanna Halldóra Leifsdóttir leikskólafulltrúi, Anna Lind Traustadóttir, Elísa Viðarsdóttir og Edda Björg Sigurðardóttir grunnskólafulltrúi.

Markmið samningsins er m.a. að tryggja gott úrval og gæði í máltíðum sem boðið er upp á í leik- og grunnskólum Garðabæjar.