Beint í efni

Nýr bú­setu­kjarni rís í Hnoðra­holti

Fréttir
20.04.2026

Það var sannkölluð gleðistund þegar fyrstu skóflustungurnar að nýjum búsetukjarna fyrir fatlað fólk við Haustbraut í Hnoðraholti voru teknar.

Um sjö íbúða kjarna er að ræða, með sérinngang í hverja íbúð. Hönnun húsnæðisins og verkefnið í heild sinni styður við sett markmið um sjálfstæða búsetu og lífsgæði í heimabyggð.

„Það verður spennandi að sjá þessa mikilvægu starfsemi fá samastað hér í háholti Hnoðraholts, með þetta einstaka útsýni í allar áttir. Nú eru spennandi tímar fram undan og við hlökkum til að hefja næsta kafla,“ sagði Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, við tilefnið. Stefnt er að því að búsetukjarninn verði tekinn í notkun um haustið 2027.

„Við erum afar ánægð með hvernig til hefur tekist með hönnun og útfærslu á nýjum kjarna og spennt fyrir því að fá hann í notkun, eins og vonir standa til, síðla árs 2027. Íbúðirnar, sem eru sjö talsins, eru hver og ein með sérinngang, góða forstofu og rúmgóða geymslu. Þær eru mjög bjartar með hárri lofthæð í stofunni og með möguleika á að hafa litla verönd fyrir framan hverja íbúð. Starfsmannarýmin eru vel skipulögð og halda vel utan um starfsemina. Það er okkar trú að búsetukjarninn taki vel utan um íbúana og að þeim muni líða vel í þessu hlýlega húsnæði og fallega umhverfi,“ segir Svanhildur Þengilsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Garðabæjar, um verkefnið.

Gunnar Valur Gíslason formaður velferðarráðs tók til máls við tilefnið og sagði vinnuna sem liggur að baki verkefnins hafa verið afar ánægjulega. Hann nýtti tækifærið og þakkaði starfsfólki velferðarsviðs Garðabæjar og nefndarmönnum velferðarráðs fyrir farsælt samstarf.

Sturla .D Þorsteinsson, fulltrúi velferðarráðs, Svanhildur Þengilsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs, Þorbjörg Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi og fulltrúi velferðarráðs, Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, Gunnar Valur Gíslason, formaður velferðarráðs, Björg Fenger, formaður bæjarráðs og Pála Marie Einarsdóttir, deildarstjóri í málefnum fatlaðs fólks, tóku fyrstu skóflustungurnar að nýja búsetukjarnanum.