Nýr púttvöllur í Sjálandi tekinn í notkun

Það ríkti frábær stemning þegar nýi púttvöllurinn í Sjálandi var tekinn í notkun og greinilegt að margir bæjarbúar hafa beðið með eftirvæntingu eftir vellinum.
Viðstaddir fengu við tilefnið sérmerktar golfkúlur með merki Garðabæjar og gátu spreytt sig á nýja vellinum, sem er níu holur. Edwin Roald golfvallahönnuður skipulagði svo skemmtilegt púttmót fyrir gesti og var þátttakan frábær. Þau sem báru sigur úr bítum voru Guðrún Antonsdóttir, Kristín Auðunsdóttir, Pálmi Matthíasson og Margrét Kristinsdóttir sem öll fóru völlinn á 20 höggum.
Púttvöllurinn er eitt þeirra verkefna sem hlutu flest atkvæði í íbúakosningu í lýðræðisverkefninu Betri Garðabær 2023-2025. Hugmyndasmiðurinn Rannveig Inga Marelsdóttir lét sig ekki vanta og fékk þann heiður að slá fyrsta höggið á nýja vellinum.
Völlurinn er sannarlega frábær viðbót við aðra útivist sem hægt er að stunda á svæðinu










