Nýr samstarfssamningur Hestamannafélagsins Spretts og Garðabæjar undirritaður
Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Garðabær hefur undirritað samstarfssamning við Hestamannafélagið Sprett.
Meginmarkmið samstarfs Hestamannafélagsins Spretts og Garðabæjar er að efla barna- og unglingastarf í hestaíþróttum í Garðabæ, meðal annars með reglulegu námskeiðahaldi á félagssvæði Spretts.
Með samstarfinu skal sérstaklega hugað að því að mæta þörfum fatlaðra barna og ungmenna í samræmi við stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks. Einnig að vinna áætlun varðandi eineltismál og skal félagið njóta samvinnu við Garðabæ um fræðslu og viðbrögð við slíkum málum í samræmi við forvarnastefnu og samskiptasáttmála bæjarins. Aðalstjórn Spretts ber einnig ábyrgð á að félagið og allar deildir þess kynni sér, innleiði og starfi samkvæmt leiðbeiningum og verklagsreglum ÍSÍ um kynferðislegt áreiti í íþróttum.
Nýr samningur gildir til ársloka 2025.

Katla Gísladóttir varaformaður Spretts og Jónína Björk Vilhjálmsdóttir formaður Spretts ásamt Almari Guðmundssyni bæjarstjóra Garðabæjar og Hrannari Braga Eyjólfssyni formanni íþrótta- og tómstundaráðs við undirritun samningsins.