Beint í efni

Nýr vef­ur Garða­bæj­ar kom­inn í loft­ið

Fréttir
24.03.2026

Ný vefsíða Garðabæjar hefur verið tekin í gagnið. Vefurinn fór í loftið þann 24. mars og mun gegna lykilhlutverki í upplýsingagjöf og þjónustu við íbúa. Nýi vefurinn opnar í tilefni af 50 ára afmæli bæjarins.

Við hönnun og uppsetningu nýja vefsins var lögð áhersla á að hann væri nútímalegur, aðgengilegur og notendavænn. Það birtist meðal annars í læsilegu letri, einföldum og skýrum táknum og formum sem voru sérstaklega hönnuð fyrir nýjan vef Garðabæjar.

Aðgengilegur og skýr

Eitt af meginmarkmiðum með endurnýjun vefsins var að gera íbúum auðveldara að nálgast upplýsingar og þjónustu sveitarfélagsins og að notendur finni efni fljótt og auðveldlega.

„Við trúum því að vefurinn muni bæta þjónustu við íbúa og styrkja upplýsingagjöf bæjarins,“ segir Ágúst Þór Guðmundsson, sviðsstjóri þjónustu- og þróunarsviðs Garðabæjar. „Vefurinn er jafnframt einstaklega fallegur og sækir innblástur í umhverfi Garðabæjar.“

Náttúran veitir innblástur

Náttúra og umhverfi Garðabæjar voru innblástur við hönnun vefsins. Litapallettan endurspeglar náttúruna, gróðurinn og yfirvegaðan tón bæjarins og form sem einkenna vefinn sækja innblástur í landslag bæjarins.

Vefurinn verður áfram í þróun næstu daga. Við biðjumst velvirðingar ef einhverjar upplýsingar eru ekki enn aðgengilegar á meðan á þessu ferli stendur. Hafir þú ábendingu, hugmynd eða athugasemd um nýjan vef Garðabæjar þá má senda það á nyrvefur@gardabaer.is.