Beint í efni

Ókeyp­is að­gang­ur á sýn­ing­una Sund í Hönn­un­ar­safni Ís­lands

Fréttir
01.02.2022

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Þriðjudaginn 1. febrúar verður í Hönnunarsafni Íslands opnuð sýningin Sund. Ekki verður um eiginlega opnun að ræða heldur gestum boðinn ókeypis aðgangur út febrúar.

Ókeypis aðgangur á sýninguna Sund í Hönnunarsafni Íslands

Þriðjudaginn 1. febrúar verður í Hönnunarsafni Íslands opnuð sýningin Sund. Ekki verður um eiginlega opnun að ræða heldur gestum boðinn ókeypis aðgangur út febrúar.

Sýningin nær yfir tímabilið frá sundvakningunni við upphaf 20. aldar til dagsins í dag. Sagan sem hún segir af sundlaugamenningu er um leið ylvolg sagan af íslensku nútímasamfélagi með létti angan af klór og hveralykt, gufuslæðu og skvampi.

Sýningarstjórar eru Valdimar Tr. Hafstein þjóðfræðingur og Brynhildur Pálsdóttir hönnuður en sýningin er unnin í samstarfi við Háskóla Íslands.

Hönnunarsafn Íslands á Garðatorgi 1 er opið frá 12-17 alla daga nema mánudaga.

Ókeypis aðgangur á sýninguna Sund í Hönnunarsafni Íslands - Garðabær