Beint í efni
IS

Öll grunn­skóla­börn í Garða­bæ feng­ið sól­myrkva­gler­augu

Fréttir
11.06.2026

Nú hafa öll grunnskólabörn í Garðabæ fengið sólmyrkvagleraugu afhent frá Garðabæ.

Þann 12. ágúst næstkomandi verður almyrkvi á sólu og hann mun sjást vel frá Garðabæ. Þetta er fyrsti almyrkvinn sem sést frá höfuðborgarsvæðinu síðan 17. júní 1433. Af þessu tilefni færir Garðabær leik- og grunnskólabörnum í Garðabæ sólmyrkvagleraugu að gjöf.

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar, fór ásamt fulltrúum fræðslu- og frístundasviðs í alla grunnskóla Garðabæjar og afhenti skólastjórum gjöfina. Nemendum voru svo færð sólmyrkvagleraugun við skólaslit.

„Það var virkilega gaman að fara á milli skólanna og afhenda sólmyrkvagleraugun. Í heimsóknum okkar sáum við að nemendur bíða með eftirvæntingu eftir almyrkvanum enda er um afar merkilegan viðburð að ræða. Nú eru þau komin með rétta búnaðinn til að fylgjast með þessu magnaða náttúrufyrirbæri,“ segir Almar.

Fræðsluefni á bakhlið gleraugnanna

Á bakhlið gleraugnanna er QR-kóði sem vísar á fræðsluefni á vef Sævars Helga Bragasonar, sem er betur þekktur sem Stjörnu Sævar.

Sævar segir mikilvægt að setja þar til gerð sólmyrkvagleraugu upp þegar horft er á tunglið færast fyrir sólina. Þegar almyrkvinn skellur á er óhætt að taka þau af.

„Á solmyrkvi2026.is finnurðu allar upplýsingar um þá stórfenglegu upplifun sem almyrkvi á sólu er. Að vera uppi á réttum tíma og búa undir slóð almyrkva á sólu eru einstök forréttindi. Þú færð næsta tækifæri ekki fyrr en eftir 170 ár. Sólmyrkvagleraugun sem Garðabær gefur uppfylla allar kröfur um öryggi augna. Þau á að nota til að fylgjast með tunglinu færast hægt og rólega fyrir sólina. Þegar almyrkvinn hefst tekurðu gleraugun af og horfir með berum augum. Hvenær og hve lengi geturðu séð á gagnvirka kortinu á solmyrkvi2026.is. Njótið 12. ágúst! Sama hvernig viðrar verður dagurinn einstakur og sögulegur,“ segir Sævar.

Á næstu dögum fá einnig leikskólabörn í Garðabæ sólmyrkvagleraugu.

Nemendur í Alþjóðaskólanum á Íslandi, Álftanesskóla, Barnaskóla Hjallastefnunnar, Flataskóla, Garðaskóla, Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla og Urriðaholtsskóla fengu sólmyrkvagleraugu.