Beint í efni

Opið fyr­ir um­sókn­ir um menn­ing­ar­styrk til 15. jan­ú­ar

Fréttir
03.12.2024

Athugið að þessi frétt er eldri en 12 mánaða.

Umsóknarfrestur um til styrk til menningarstarfsemi í Garðabæ er til 15. janúar 2025.

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar auglýsir nú eftir umsóknum frá einstaklingum og félagasamtökum um styrk til eflingar á menningarlífi í Garðabæ. Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2025.

Markmiðið með menningarstyrkjum er að styðja við menningarstarfsemi í Garðabæ og styrkja einstaklinga og félagasamtök til lista- og menningarsköpunar.

Umsóknum skal skilað með rafrænum hætti í gegnum þjónustugátt á vefsíðu Garðabæjar fyrir 15. janúar. Reglur vegna úthlutunar styrkja má nálgast hérna.

Menningar- og safnanefnd fer yfir umsóknir og metur þær eftir markmiðum verkefna og hvernig þau nýtast til að efla fjölbreytt menningarlíf, bæjarbúum og listamönnum í Garðabæ til góðs í samræmi við menningarstefnu bæjarins.