Beint í efni

Opið leng­ur í sundi á sunnu­dög­um

Fréttir
01.06.2026

Frá 1. júní til 30. september verða Ásgarðslaug og Álftaneslaug opnar lengur á sunnudögum, eða til klukkan 22:00 í stað 18:00.

Þetta er liður í að styðja við lýðheilsu bæjarbúa, auka aðgengi að hreyfingu og fjölskylduvænni þjónustu í sumar og styðja við samfélagslega samveru.

Sjáumst í sundi í sumar!