Beint í efni

Sam­starf Garða­bæj­ar og Hjalla­stefn­unnar vex og dafnar á Víf­ils­stöð­um

Fréttir
25.03.2026

Garðabær og Hjallastefnan hafa undirritað samkomulag um áherslur uppbyggingar skólasamfélags Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum. Samningurinn var undirritaður við notalega athöfn utandyra, í trjálundinum við Barnaskóla Hjallastefnunnar.

Hjallastefnan rekur nú tvo leikskóla á Vífilsstöðum, annars vegar Hnoðraholt og hins vegar Litlu-Ása, sem mun framvegis starfa undir heitinu Vífilsholt, auk Barnaskóla Hjallastefnunnar. Samkomulagið gerir ráð fyrir áframhaldandi starfsemi þessara skóla á svæðinu og að hún geti vaxið frekar.

Markmið samkomulagsins er að stækka og efla skólasamfélagið á Vífilsstöðum og skapa þannig betri aðstæður fyrir börn og fjölskyldur í hverfinu.

Áframhaldandi uppbygging menntastofnana á Vífilsstöðum

Samkomulagið felur annars vegar í sér að við áframhaldandi skipulagsvinnu á Vífilsstöðum mun Garðabær gæta þess að nægt rými verði tryggt fyrir starfsemi Hjallastefnunnar á svæðinu. Hins vegar er kveðið á um að Garðabær og Hjallastefnan muni í sameiningu undirbúa stækkun Vífilsholts.

Garðabær mun annast framkvæmdir við stækkunina sem áætlað er að ljúki í ágúst 2027. Með framkvæmdunum verður leikskólaplássum fjölgað og er gert ráð fyrir að Vífilsholt verði að minnsta kosti 80 barna leikskóli að þeim loknum en þar eru tæplega 50 börn í dag.

Það var notaleg stund þegar Garðabær og Hjallastefnan undirrituðu samninginn. Boðið var upp á piparkökur, kakó og samsöng.

Samkomulagið byggir á sameiginlegum vilja beggja aðila til að tryggja stöðugt og öflugt skólasamfélag á Vífilsstöðum.

„Báðir aðilar eru sammála um mikilvægi samstarfs um rekstur skólastarfs á svæðinu og því er lykilatriði að tryggja rými til framtíðar,“ sagði Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar. „Með þessum samningi erum við bæði að skjóta sterkari rótum undir skólastarf á svæðinu og um leið að skapa aukið rými fyrir börn sem munu flytjast á ný íbúðasvæði í nágrenninu . Samstarfið við Hjallastefnuna hér í Garðabæ í gegnum árin hefur verið farsælt og til fyrirmyndar. Það er ljóslifandi dæmi um það hvernig sveitarfélög og sjálfstætt starfandi aðilar geta átt í blómlegu og uppbyggilegu samstarfi sem skilar sér til íbúa í auknum gæðum, fjölbreytni og hagkvæmni.“