Beint í efni

Sam­starf um upp­bygg­ingu sér­skóla­úr­ræða

Fréttir
14.05.2026

Garðabær, auk annarra sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins og tveggja ráðuneyta, hefur undirritað viljayfirlýsingu um samstarf um uppbyggingu sérskólaúrræða á höfuðborgarsvæðinu.

Viljayfirlýsing um samstarf um uppbyggingu sérskólaúrræða á höfuðborgarsvæðinu hefur verið undirrituð. Að viljayfirlýsingunni standa Garðabær, Reykjavíkurborg, Kópavogsbær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Mosfellsbær og Seltjarnarnesbær ásamt mennta- og barnamálaráðuneytinu og innviðaráðuneytinu.

Viljayfirlýsingin byggir á greiningu sem unnin var fyrir Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) um fýsileika aukins samstarfs sveitarfélaganna og ríkisins um sérskólaúrræði. Niðurstöður greiningarinnar sýna að samstarfið sé bæði raunhæft og að með samstilltu átaki sé hægt að byggja upp öflug og fjölbreytt úrræði fyrir börn með ólíkar stuðningsþarfir.

Horft til langtíma- og skammtímaúrræða

Markmið samstarfsins er að tryggja að börn sem þurfa sérskólaúrræði fái þjónustu sem tekur mið af þörfum þeirra og styður við farsæld þeirra, virkni og menntun.

Í samstarfinu verður horft bæði til uppbyggingar langtímasérskólaúrræða fyrir börn með langtímasérskólaþarfir, fjölbreyttra skammtímaúrræða og einnig til eflingar sérdeilda innan almennra grunnskóla.

Skipaður verður sameiginlegur stýrihópur sveitarfélaganna og mennta- og barnamálaráðuneytisins sem mun móta tillögur að framtíðarskipan úrræðanna. Gert er ráð fyrir að hópurinn skili tillögum sínum fyrir lok árs 2026.

Nánar á vef SSH.