Samstarfssamningur við Æskulýðsfélag Bessastaðasóknar undirritaður
Fréttir
22.04.2026

Endurnýjaður samningur um æskulýðsstarf á vegum Æskulýðsfélags Bessastaðasóknar hefur verið undirritaður.
Garðabær og Bessastaðasókn hafa undirritað endurnýjaðan samstarfssamning um framkvæmd æskulýðsstarfs á Álftanesi. Samningurinn gildir til loka árs 2028 og felur Æskulýðsfélagi Bessastaðasóknar meðal annars að efla barna- og unglingastarf við kirkjuna, annast leiðtogaþjálfun fyrir unglinga og vinna að bættu unglingasamfélagi í Garðabæ.
Æskulýðsfélag Bessastaðasóknar skal við framkvæmd samningsins huga sérstaklega að því að mæta þörfum fatlaðra barna og ungmenna í samræmi við stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks.
Hlutverk Æskulýðsfélags Bessastaðasóknar er meðal annars að:
- Efla barna- og unglingastarf við kirkjuna, meðal annars í formi sunnudagaskóla.
- Efla tengsl við annað íþrótta-, tómstunda- og forvarnarstarf í Garðabæ.
- Annast fræðsluverkefni fyrir börn og ungmenni með áherslu á mannréttindi, hjálparstarf, lífsleikni og almenna siðfræði.
- Annast leiðtogaþjálfun fyrir unglinga í samstarfi við önnur félög og stofnanir í Garðabæ.
- Vinna að bættu unglingasamfélagi í Garðabæ og auka breidd og valkosti í æskulýðsstarfi í bænum.
- Bjóða upp á foreldramorgna með fræðslu og góðu samfélagi.
- Bjóða aðstoð við lífsleiknikennslu í FG með fræðslu um sorgarúrvinnslu og almennt hjálparstarf.
- Tilnefna fulltrúa í forvarnarteymi bæjarins og taka þátt í forvarnarfræðslu í samstarfi við forvarnarfulltrúa Garðabæjar.