Samstarfssamningur við Garðasókn um æskulýðsstarf undirritaður

Nýr samstarfssamningur Garðasóknar og Garðabæjar um framkvæmd æskulýðsstarfs á vegum Garðasóknar hefur verið undirritaður.
Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar og Ingibjörg Hauksdóttir varaformaður sóknarnefndar Garðasóknar undirritðuðu samninginn sem felur meðal annars í sér að efla barna- og unglingastarf við kirkjuna, annast fræðsluverkefni fyrir börn og ungmenni, styðja við tónlistarstarf og vinna að bættu unglingasamfélagi í Garðabæ. samningurinn gildir til loka árs 2028.
Garðasókn skal við framkvæmd samningsins huga sérstaklega að því að mæta þörfum fatlaðra barna og ungmenna í samræmi við stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks.
Markmið æskulýðsstarfs Garðasóknar er meðal annars að efla barna- og unglingastarf við kirkjuna, t.a.m. í formi sunnudagaskóla, efla tengsl við annað íþrótta-, tómstunda- og forvarnarstarf í bænum, annast fræðsluverkefni fyrir börn og ungmenni með áherslu á mannréttindi, hjálparstarf og lífsleikni, starfrækja kór fyrir ungmenni og bjóða upp á foreldramorgna með fræðslu og góðu samfélagi.