Beint í efni

Áfram­hald­andi upp­bygg­ing barna- og ung­linga­starfs golf­klúbbs­ins Odds

Fréttir
20.05.2026

Golfklúbburinn Oddur og Garðabær hafa undirritað nýjan samstarfssamning til næstu tveggja ára sem markar mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu barna- og unglingastarfs klúbbsins.

Með samningnum er stutt við markvisst starf Odds á félagssvæði sínu og áframhaldandi uppbyggingu góðs íþróttastarfs fyrir börn og ungmenni. Síðastliðin fjögur ár hefur áhersla verið lögð á að skapa öflugt og aðgengilegt umhverfi fyrir unga kylfinga þar sem fagleg þjálfun, félagsandi og ánægja fara saman og hefur sú vinna skilað góðum árangri.

Í samstarfssamningnum er lögð áhersla á að starfið sem boðið er upp á sé faglegt, öruggt og aðgengilegt. Skal hugað sérstaklega að þátttöku fatlaðra barna og ungmenna og tryggja að starf félagsins taki mið af stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks.

Samningurinn kveður jafnframt á um að félagið vinni eftir skýrum verklagsreglum um samskipti, forvarnir og viðbrögð við einelti og áreiti. Þá er lögð áhersla á að leiðbeinendur og þjálfarar hafi viðeigandi þekkingu eða menntun og séu góðar fyrirmyndir í starfi með börnum og ungmennum.