Beint í efni

Sam­starfs­samn­ing­ur við Skáta­fé­lag­ið Svani

Fréttir
29.07.2026
Skátafélagið Svanir - undirritun samstarfssamnings

Í byrjun júlí var undirritaður samstarfssamningur til ársins 2028 á milli Garðabæjar og Skátafélagsins Svana um framkvæmd skátastarfs á félagssvæði Svana í Garðabæ.

Í samningnum er kveðið á um að skátafélagið skuli hafa það að markmiði í starfsemi sinni að bjóða börnum og unglingum af öllum kynjum skipulagt skátastarf undir leiðsögn vel menntaðra og hæfra leiðbeinenda þar sem lýðheilsu- og forvarnargildi skátastarfs eru höfð að leiðarljósi. Hlutverk félagsins er m.a. að efla og þroska börn og ungt fólk til að verða sjálfstæðir, virkir og ábyrgir einstaklingar í samfélaginu. Skátafélagið Svanir setur sér það markmið í starfi sínu að uppfylla öll gæðaviðmið Bandalags íslenskra skáta.

Í samningnum er tilgreint að félagið skuli sérstaklega huga að því að mæta þörfum fatlaðra barna og ungmenna í samræmi við stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks. Jafnframt skal félagið vinna jafnréttisáætlun sem tekur mið af jafnréttisáætlun Garðabæjar. Félaginu ber einnig að taka tillit til lýðheilsu- og forvarnarstefnu Garðabæjar við skipulag starfsemi sinnar og framkvæmd viðburða.

Skátafélagið Svanir var stofnað árið 1983 og er með starfsemi sína á Álftanesi í Garðabæ. Félagið er með fjölbreytt starf fyrir börn og ungmenni yfir allt árið og er með sérstök útilífsnámskeið yfir sumartímann fyrir börn á aldrinum 6-12 ára þar sem vinátta, útivera og ævintýri eru í forgrunni. Hér á vef Svana má lesa nánar um starfssemi félagsins.